My interview in Icelands National Paper

If anyone can read Icelandic let me know how this article reads! (click on title for link to the actual page)

As you will read in blogs I did for FFF this Icelandic Fashion Week was a total scam. These poor designers were told they would have a magical fashion show that ended up rained out with no alternative venue. I hope this event never happens again. At least with Kolla as President.
More soon.

Hallarbylting hönnuða á Iceland Fashion Week

Cator Sparks Hann kom til landsins á vegum Full Frontal Fashion og hefur meðal annars skrifað fyrir New York Times.
„Tískuvikan var hryllileg, algjör hörmung. Ég skil ekki hvernig þessi kona hefur getað unnið svona lengi við þetta," segir bandaríski blaðamaðurinn Cator Sparks.

Cator skrifar fyrir vefmiðilinn Full Frontal Fashion og kom til landsins í síðustu viku í tengslum við Iceland Fashion Week. Allt fór í háaloft á laugardag þegar tískusýning átti að fara fram á Ljósanótt í Reykjanesbæ og hönnuðir neituðu að senda fyrirsæturnar á sýningarpallinn.

„Skíturinn skall á viftunni daginn sem tískusýningin var haldin í Keflavík," segir Cator. „Hún [Kolbrún Aðalsteinsdóttir] sagði að módelin myndu „ganga á vatni" og það hljómaði eins og ótrúlega fallegur sýningapallur - virkilega framandi. En pallurinn samanstóð af stöflum af íslenskum vatnsflöskum á vörubrettum og sýningin var haldin í miðri bæjarhátíð! Þetta var hræðilegt!"

Cator segist hafa vorkennt hönnuðunum sem áttu að sýna. Vinnuaðstaða þeirra var í tjaldi sem lak í rigningunni og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eyðilögðust nokkrar flíkur.

Svo fór að flestir hönnuðirnir ásamt nánast öllu starfsfólki tískusýningarinnar fyrir utan Kolbrúnu færðu sýninguna á Nasa, þar sem hún fór fram eftir að hafa meðal annars verið auglýst á Facebook.

Cator segir að Kolbrún hafi ekki tekið því vel.

„Kolla kom inn í eitt tjaldanna og öskraði að þetta væri ólöglegt og að þau mættu þetta ekki," segir hann, „Hún sagði líka að þau sem færu myndu aldrei vinna fyrir hana aftur og bað alla um að koma með sér. Það litu allir á hana og sögðu:

„Fyrirgefðu, en við ætlum með hönnuðunum". Hún fór þá, tók rútuna sem átti að ferja okkur og skildi okkur eftir í rigningunni á bæjarhátíð í Keflavík. Það tók klukkutíma að fá leigubíl. Hún bar enga virðingu fyrir okkur og ég velti fyrir mér hvort hún geri sér grein fyrir hverja hún skildi eftir; New York Times, New York Magazine, risastórar alþjóðlegar útgáfur og henni var alveg sama."

Kolbrún Aðalsteinsdóttir, skipuleggjandi Iceland Fashion Week, segir að hæst bylji í tómri tunni og vill að öðru leyti ekki tjá sig um óánægju hönnuða og blaðamanna.

„Verkefnið mitt skilaði svakalega skemmtilegri vinnu sem alheimspressan veit um og er alveg hrikalega flott," segir hún. Kolbrún hyggst halda Iceland Fashion Week á ný á næsta ári.
atlifannar@frettabladid.is